05apríl

i´m baaaaaaaaaack!

hæ, bloggið lifir. Mér til varnar þá skrifaði ég nú blogg hérna ekki ansi fyrir löngu en það strokaðist út svo þá varð ég mjög pirruð á bloggheiminum og hét því að reyna ekki að blogga aftur í smá tíma. En ég er komin yfir það og nú reyni ég þetta aftur.

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér, hef verið að vinna og upp í sveit þess á milli að leita að nýjum hesti. Og í gær keypti ég nýja meri! Hún er rosalega efnileg og ég get ekki beðið eftir að vinna með hana. Ætla að prófa að keppa á henni að ganni núna í apríl en ég veit ekki alveg við hvaða árangri ég á að búast þar sem ég hef ekkert þjálfað hana af viti og hef ekki kynnst henni neitt af viti ennþá. Ég keypti hana bara í gær og hún er ennþá upp í sveit. Hún hét Saga þegar ég keypti hana og ætla ég að halda því nafni því mér finnst það mjög fallegt og það er líka smá saga í kringum hana og hvernig þetta æxlaðist allt saman:) En ég bætti við Sif, svo hún heitir Saga Sif, mamma heitir Sif og ég vildi heiðra mömmu smá með þessum hesti, því hún og pabbi hafa stutt mig ótrúlega með þetta allt saman. Get ekki skírt hana Benedikt í höfuðið á pabba haha en Saga Sif hljómar vel og fer henni bara rosa vel því hún er svo falleg og blíð. En já er að fara upp í sveit að prófa hana meira svo þarf ég að keyra alla leið upp að Hellu því ég ætla að gefa Kristni, manninum sem ég var hjá í sveit og hjálpaði mér að finna hana, málverk fyrir alla hjálpina. So leiter á ykkur beibís! Thelma

05. apríl 2007 klukkan 10:41
Betty Valentine
5 athugasemdir
09mars

you´re in the basement, i´m in the sky, drop on by

hahaha ég fékk mikið flash back áðan þegar ég var að horfa á jay leno í leti minni.
Korn voru að spila og þá fór ég að hugsa um Korn ruglið sem ég og Sunna lentum í um sumarið. Remember Sungun? Þetta blogg er tileinkað endalausa ruglinu sem ég og sunna komum okkur í á þessu snilldarsumari sem seint rennur úr minni.
það var þannig að við hittum fieldy og monkey úr korn á laugaveginum og við fórum yfir götuna og sögðum eitthvað við þá, ætluðum svo að draga þá á ellefuna en "their manager, peter, eða whatever his name was" vildi fara á "the stick" sem við komumst svo að að var Prikið. Við fórum þangað með þeim og enduðum svo í eftirpartýi á hótelherberginu hans Fieldy. Þar kenndi ég honum sænsku, "hey ali upa" og annað þvíumlíkt bull og henti nokkrum ávöxtum um herbergið úr gay ass ávaxtarkörfu sem var á borðinu hjá honum, alvöru rokkstjörnur chilla ekki með ávaxtakörfu á borðinu, svo ávextirnir fengu að fjúka.
Svo vantaði honum hass og ég lét hann hringja í tvo stráka sem ég þekkti til að gera grín í þeim, veit ekki hvert þeir ætluðu þegar Fieldy úr Korn hringdi í þá og bað um hass. Very funny shit. Fórum svo aftur þarna daginn eftir en ég nennti þessu ekki lengur og fór heim að sofa en Sunna hélt áfram að djamma með þeim eins og hin sanna rokkstjarna sem hún er.
Við vorum meðal annars böggaðar af eitthverjum tussulífverði því hann hélt að við hefðum stolið gítarnum hans monkey....sem við gerðum ekki, heldur eitthverjir krakkar frá stokkseyri eða eitthvað. held gítarinn sé þar enn í dag. á stokkseyri þeas...ásamt ryksuguhljómsveitinni þarna, nilfisk.

Mér fannst fyndnast þegar Fieldy dró upp myndir af honum með börnunum sínum í sundlauginni að bursla, svo sentimental þessir rokkarar. Þetta var sumar óttans! Muttah und Schlange did Iceland! Man að Fieldy ætlaði að koma á hljómsveitaræfingu með okkur og kenna Sunnu á bassa, man ekki hvernig það endaði. En ekkert varð úr því. En Sunna!!!!!!! Ég held ég eigi aldrei eftir að taka á því í djammdeildinni aftur eins og þetta sumar. it sure was fun. We had joy we had fun we had seasons in the sun. Miss you babe.

09. mars 2007 klukkan 03:22
Betty Valentine
3 athugasemdir
07mars

la belle et la bette

Enn lifir bloggið mitt!
Í dag átti Sunna afmæli og vonandi átti sú sætasta glaðan dag, kisses for her.
Það er búið að vera nóg að gera. Málaði þrjár dömur fyrir árshátíðir á laugardaginn. Eitthverjar tvær konur sem höfðu fengið númerið mitt hjá hárgreiðslukonunni sinni svo ég rúllaði heim til þeirra út í Garðabæ ennþá hálflasin og gerði þær sætar og fínar eins og mér einni er lagið ;p Fór svo beinustu leið heim til Magga þar sem ég málaði hana Möggu vinkonu fyrir árshátíð sem hún var að fara á, vonandi var gaman hjá þér Magga mín ;) Fór svo til Emilíu þar sem hún var að halda barnaafmæli fyrir systur sína en það var búið svo ég stoppaði bara stutt og óskaði þeirri litlu til hamingju. Fór svo upp í hesthús að þjálfa hestinn minn, keyrði svo mömmu og pabba út að borða á Apótekið og fór svo til Emilíu og eyddi þar kvöldinu með henni, Sigrúnu, Lydíu og tveim vinkonum hennar. Það var svaka stuð og  mikið talað um stráka og sambönd, hef bara aldrei lent í öðru eins ;) Svo keyrði ég þessar elskur í bæinn en fór sjálf heim að sofa.
Í augnablikinu er ég úrvinda en get ekki sofnað, allt of mikið að gerast í hausnum á mér, of mikið að hugsa um og plana til að geta fengið frið til að sofa, very annoying. Vaknaði í morgun, hljóp 3 km, fór í vinnuna, eftir vinnu fór ég svo upp í hesthús og skrapp í útreiðartúr, hesturinn er allur að koma til og lofar góðu, enda algjör höfðingji, i´m liking him alot these days! Kom svo heim og bauð pabba í mat þar sem mamma fór í golf ferð með vinkonunum til Flórída í dag, eitthver verður að hugsa um kallinn á meðan :) En bróðir minn var að labba inn úr dyrunum svo ég ætla að fara að bögga hann!!!!!!! he won´t be pleased múhahahaha.. ciao for now bitches ;) BV

07. mars 2007 klukkan 00:45
Betty Valentine
2 athugasemdir
03mars

Ooh la she was such a good girl to me

Búin að uppfæra "About Betty Valentine" fyrir þá sem hafa áhuga...i know i sure do! You know you feel it in your pretty pretty petty coat. Skemmtið ykkur vel þið sem eruð að fara út í kvöld, ég ætla halda áfram að vera heima og reyna að láta mér batna. Fór í Ástund áðan og eyddi 15.000 kr í hesta dvd og blöð og hesta bækur og verð upptekin við að stúdera það í kvöld. Mætti halda að síminn minn væri dauður en neinei, þetta er bara svona, fólk hætt að hringja í mig og biðja mig að gera eitthvað um helgar...ps. setti inn eitthvað af gömlum myndum sem ég var að prófa að búa til myndaalbúm með avúhú.

BV
03. mars 2007 klukkan 00:00
Betty Valentine
5 athugasemdir
02mars

Still alive and kicking

Jæja, það hafa orðið framfarir í heilsufarsmálum á þessum bæ í dag, þökk sé guði. Ég hef snúið mér aftur að trúnni sem var þröngvuð upp á mig sem ungu stúlkubarni og kallast mótmælendatrú.

Eina sem að ég sá að ég gæti grætt á því að játast því að fylgja guði um ókomna tíð á fermingardeginum og vera enn ein óvirk talan í þjóðkirkjunni var það að ég sá fyrir mér nýjan hest í hyllingum. Svo jújú ég valdi mér fokkings sama kínakjól og allar hinar gelgjurnar úr Sautján, því annars var maður ekki kúl, minn var blár skiluru, og þá fylgdu nokkrir bláir í kjölfarið í valinu hjá vinkonunum, svo við vorum eins og 6-burar á fermingardaginn og fannst ekkert athugavert við það.
Það sem ég hafði þó fram yfir þær var professional make up artist sem kom og málaði mig, aha, gotta look good for god! Svo sagði ég eitthver vel valin orð frammi fyrir kirkjunni og Guði, sem ég man ekki hver eru í dag, en svo var ég farin, Sunna og ég hengum saman í veislunni minni sem var í Gyllta salnum á Hótel Borg og svo fékk ég nýja hestinn! Þar með tók ég Guð í sátt og inn í líf mitt.
Mér finnst allt of ungt að 13 ára gamlir krakkar séu látnir fermast þar sem ekkert kemst að í huga þeirra nema ný talva eða hvað sem börnum er mútað með í dag í nýjasta BT bæklingnum, svo fyrir mér finnst mér þjóðkirkjan vera einskonar mútunarstarfsemi sem auglýsir fermingar sem mikla gjafa daga, "biðjið um það sem ykkur langar mest, það er allt í lagi á þessum degi því á þessum degi fermist þið". Fermingar eru gjörsamlega auglýstar undir röngu flaggi og er verið að kaupa unga, ómótaða, krakkaheila, af röngum ástæðum og eru fermingar orðnar þjóðdagur græðgi og materializma í stað ósjálfselsku og hollustu við guð og jesú og maríu mey og allt pakkið. hvað ætli væru margir gyðingar, votta jehóvar, múslimar, hindúar o.s.frv. ef þeir keyptu æskuna inn í sín trúarbrögð með sama hætti og mótmælendatrúin hér á landi?

sæl að sinni. BV

02. mars 2007 klukkan 17:00
Betty Valentine
2 athugasemdir
01mars

Sick Girl

Góðan daginn.

Ég er búin að vera lasin í viku og einn dag og er þessi flensa svo slæm að úr hefur orðið að ég hef stofnað til blogg síðu. Ég les ekki blogg síður hjá neinum, finnst það leiðilegt, en þar sem ég held að ég liggji nú við dauðans dyr fannst mér sniðugt og jafnvel frekar nauðsynlegt að byrja blogg síðu til að skrá niður síðustu daga ævi minnar og skilja eftir svona lítið legacy um mínar lífsskoðanir og því sem ég vil koma til máls áður en ég hrekk upp af. Mikið rosalega er blogg orðið flókið síðan í gamla daga þegar ég og Sunna vorum að blogga á fólk.is eða eitthvað, minnir mig. Ef eitthver vill eitthvað sérstakt úr verðandi dánarbúi mínu þá pantið það hér í eitthvað sem mig grunar að gæti heitir comment eða eitthvað slíkt. Bið að heilsa ykkur í bili og vona að ég lifi af annan dag til að koma og segja mína hjartnæmu lífssögu sem brátt mun taka enda. Yours always, Betty
01. mars 2007 klukkan 16:23
Betty Valentine
3 athugasemdir

Wise man said.....

Be the change that you want to see in the world !

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...